Íslensku bókmennta- og glæpasagnaverðlaunin voru veitt í vikunni sem leið. Ævar Þór Benediktsson hlaut verðlaun í flokki barna- og ungmennabóka fyrir Skólastjórann sem sló hressilega í gegn um jólin og Margrét Höskuldsdóttir hlaut Blóðdropann fyrir þriðju glæpasöguna sína, Lokar augum blám.Egill Helgason ræddi við þau í Kiljunni. VANDRÆÐARLEGT AÐ DREPA ALLA Á ÞINGEYRI „Ég er svolítið ný í bransanum og mjög glöð með það sem hefur komið um mínar bækur. Þetta er auðvitað rosalega mikil viðurkenning og ég er afskaplega glöð með það, þetta er mjög gleðilegt,“ segir Margrét.Lokar augum blám er önnur bók hennar um lögregluteymið Rögnu og Berg, sú fyrri hét Í djúpinu og kom út 2024. Bækur hennar gerast allar á Vestfjörðum því þó svo að hún hafi búið í Reykjavík frá 16 ára aldri þá er hún samt a