Framlag Íslands til Úkraínu er langminnst meðal Norðurlandanna og tíu sinnum lægra en hæsta framlagið, sem kemur frá Danmörku, miðað við höfðatölu. Ísland ætlar að verja um milljarði króna til vopnakaupa fyrir Úkraínu í gegnum hið alþjóðlega PURL-verkefni.„Við erum að forgangsraða fyrir Úkraínu. Annars vegar í mannúðaraðstoð, sem er um helmingurinn af þessu, en síðan líka eins og aðrar þjóðir eru að gera, til að hjálpa Úkraínumönnum að verja sig,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.Rússar geri loftárásir á Úkraínu á hverjum degi og því séu Úkraínumenn að leggja áherslu á að efla loftvarnir.Einhugur sé innan ríkisstjórnarinnar um að fylgja þingsályktun í málefnum Úkraínu. Framlag Íslands falli þar undir og sé innan ramma fjárlaga.„Framlögin per íbúa eru tíu sinnum lægri á Íslandi en í Dan