Útlit er fyrir snjókomu eða él norðan- og austanlands í dag en sunnantil fer ekki að snjóa fyrr en síðdegis á morgun. Yfirleitt verður tiltölulega hægur vindur vestantil á landinu en allt að átján metrar á sekúndu austantil. Ekki hefur verið gefin út gul viðvörun en veðurfræðingar Veðurstofunnar vara fólk þó við hvassri norðan- og norðvestanátt austan Öræfa og á Austfjörðum með snörpum vindhviðum.Veðurspáin er svohljóðandi:Norðlæg átt, yfirleitt þrír til tíu metrar á sekúndu vestantil en þrettán til átján austantil. Snjókoma eða él norðan- og austanlands en yfirleitt bjart sunnantil fram eftir degi.Bætir í vind vestantil á morgun og fer að snjóa um landið sunnanvert síðdegis, þrettán til tuttugu og hríð suðvestantil annað kvöld.Frost þrjú til átján stig, kaldast inn til landsins.