Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Ófært um Fjarðarheiði og þungfært á Fagradal

Ófært er um Fjarðarheiði þennan morguninn og þungfært á Fagradal. Samkvæmt upplýsingum á vef Vegagerðarinnar er mikið um snjóþekju þar en hálka eða hálkublettir á flestum öðrum leiðum á Austurlandi. Ófært er um Öxl og Breiðdalsheiði. Þungfært er á Þröskuldum og nokkuð víða snjóþekja, hálka eða hálkublettir á öðrum vestfirskum vegum.Þæfingur er í Almenningum og snjóþekja, hálka eða hálkublettir á flestum vegum Norðanlands.Annars staðar þar sem Vegagerðin hefur kannað aðstæður er víða hálka á vegum. Á Fjarðarheiði. Safnmynd.RÚV / Rúnar Snær Reynisson
Ófært um Fjarðarheiði og þungfært á Fagradal

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta