Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Um 20% landsmanna búa við fátækt

Um einn af hverjum fimm íbúum Litháens býr við fátækt samkvæmt upplýsingum frá litháísku hagstofunni. Þeir hópar sem eru hvað mest útsettir fyrir fátækt eru ungt fólk, ellilífeyrisþegar og fatlað fólk.Ungu fólki á aldrinum 18–24 ára gengur oft erfiðlega að komast inn á atvinnumarkaðinn og er í hvað mestri hættu á að lenda í gildru fátæktar. Ungu fólki fer fjölgandi í hópi þeirra sem leita sér aðstoðar vegna fátæktar.„Í þessum hópi er ungt fólk, um 20 ára aldur eða litlu eldra, og einnig ungar mæður með börn. Sumir í þessum hópi hafa snúið aftur heim eftir að hafa verið svikin um laun í störfum erlendis. Hér eru þau heimilislaus og hafa jafnvel misst tengsl við fjölskyldu sína. Sögur þeirra eru mismunandi,“ segir Ingrida Radzevičė, forstöðukona Betanija-félagsmálastofununarinnar.Börn og fat
Um 20% landsmanna búa við fátækt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta