Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Árásarmaðurinn mætir fyrir rétti í fyrsta sinn

Naveed Akram og faðir hans, Sajid Akram, eru taldir hafa verið einir að verki þegar þeir skutu fólk af handahófi á Bondi-strönd í Sydney 14. desember. Lögreglumenn skutu Sajid til bana og því hefur Naveed einn verið ákærður í 59 liðum, meðal annars fyrir fimmtán morð og hryðjuverk. Hann mætti fyrir dómstól í Sydney í fyrsta sinn í dag í gegnum fjarfundabúnað en Akram situr í gæsluvarðhaldi í Goulburn-öryggisfangelsinu. Ástralski ríkisfjölmiðillinn ABC greinir svo frá.Lögregla telur feðgana hafa skipulagt árásina mánuðum saman. Þó er ekki talið að þeir hafi tilheyrt neinum hryðjuverkahópum. Meðal sönnunargagna í málinu eru myndbandsupptökur af Akram-feðgum að skjóta úr byssum og þá fannst einnig myndband í síma Naveeds, þar sem feðgarnir sitja með skotvopn sín fyrir framan fána Íslamska rík
Árásarmaðurinn mætir fyrir rétti í fyrsta sinn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta