Happdrætti Háskóla Íslands varar við svikaauglýsingum sem nú eru í dreifingum á samfélagsmiðlum. Í auglýsingunum er bæði vísað til Gullnámunnar og Reykjavik Casino, í tilkynningu frá Happdrætti háskólans segir að auglýsingarnar séu hvorki á vegum HHÍ né Gullnámunnar og tengist því starfsemi happdrættisins ekki með neinum hætti.Markmið auglýsinganna virðist vera að fá fólk til að skrá sig inn á síður þar sem óskað er eftir greiðslu- eða persónuupplýsingum.HHÍ hvetur fólk til þess að smella ekki á tenglana sem fylgja auglýsingunum. Hafi einhver þegar orðið fyrir tjóni hvetur HHÍ fólk til þess að tilkynna ma´lið til lögreglu og hafa smaband við sinn viðskiptabanka.