Heimsóknarhundar Rauða krossins gegna mikilvægu hlutverki. Eigendur þeirra fara með þá í heimsóknir til fólks, meðal annars á heimili þeirra, hjúkrunarheimili, fangelsi og sjúkrahús. Og hlutverkið er einfalt: veita félagsskap, nærveru og hlýju. En til þess að gerast heimsóknarhundur þarf að standast grunnmat og verklegt mat - og eigandinn að sitja námskeið.Sjá einnig: Mestu mátar eftir hundavinaverkefni Rauða krossinsÍ verklega matinu eru athugað hvort hundurinn sé opinn og mannelskur. Hundarnir þurfa að kunna að umgangast hjólastóla og göngugrindur og alls kyns áreiti þar sem heimsóknarstaðirnir eru margvíslegir.Í heildina útskrifuðust átján ferfætlingar sem heimsóknarhundar að þessu sinni og því ekkert því til fyrirstöðu að þeir fari í sínar fyrstu heimsóknir.