Starfshópi verður falið að skoða fýsileika þess að leggja sérstakan skatt á vörur sem teljast óhollar, samkvæmt drögum að þingsályktunartillögu. Jafnframt verður kannaður möguleikinn á að lækka álögur á holl matvæli. Heilbrigðisráðherra segir nauðsynlegt að líta til reynslu annarra landa af slíkri skattheimtu og hvort hún hafi skilað jákvæðum árangri.