Í janúar ár hvert setjast foreldrar, nemendur og kennarar í Víðistaðaskóla í Hafnarfirði niður og skipuleggja komandi vikur.Fram undan er mikil vinna við að setja upp árlegan söngleik 10.bekkinga við skólann.Allir nemendur taka þátt í sýningunni með einhverjum hætti og foreldrar skipta með sér verkum, allt frá smíði leikmyndar til búningahönnunar.Um helgina var komið að stóru stundinni, söngleikurinn Mamma Mia var sýndur fyrir fullu húsi.