Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kviknaði í sinu við Korputorg

Eldur kviknaði í sinu við Korputorg í Reykjavík síðdegis í dag. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fór á staðinn og var búið að slökkva eldinn á um fimm mínútum eftir komuna. Eldurinn brann á um 30 til 40 fermetra svæði.Sinubrunar hafa verið óvenju algengir á höfuðborgarsvæðinu undanfarið miðað við árstíma. Þar ræður auðvitað mestu sá mikli þurrkur sem verið hefur í ársbyrjun. Eldurinn hefur þó ekki náð að breiðast út að ráði í þessum tilfellum.Sinubruni. Mynd úr safni.RÚV / Kristín Sigurðardóttir
Kviknaði í sinu við Korputorg

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta