80 ára Ítali hefur verið kallaður til yfirheyrslu af saksóknurum í Mílanó á Ítalíu fyrir aðkomu hans og þátttöku í svokölluðum leyniskyttu-veiðiferðum, „Sniper safari“, til Sarajevó, höfuðborgar Bosníu og Hersegóvínu, á 10. áratugnum.Talið er að yfir 11.000 manns hafi verið myrt af leyniskyttum sem földu sig í hæðunum yfir Sarajevó á tímum Júgóslavíustríðsins. Í heimildarmyndinni Sarajevo Safari sem kom út fyrir fjórum árum segir fyrrum hermaður serbneska hersins frá því að ferðamenn víða að úr Evrópu hafi greitt hermönnum háar upphæðir til þess að ferðast til borgarinnar til þess að skjóta almenna borgara sér til skemmtunar.Saksóknarar í Mílanó hófu rannsókn á þætti Ítala í þessum morðum eftir að ítalskur blaðamaður, Ezio Gavazzeni, hóf að rannsaka aðkomu Ítala að ferðunum og lagði fram k