Rithöfundurinn og galleríistinn Úlfar Þormóðsson sendi frá sér bókina Örblíðu: Beðið eftir sjálfum mér fyrir jól og leiðir þar lesandann í undarlegt ferðalag, sprottið upp úr hugleiðingum af ýmsu tagi og leit að manni sem sífellt hverfur.„Þetta er bók um Úlfar Þormóðsson, mann sem er kominn á efri ár og virðist í byrjun bókar lifa kyrrlátu lífi,“ segir Þorgeir Tryggvason gagnrýnandi Kiljunnar á RÚV. „En þá gerist það að farið er að rifja upp í fjölmiðlum gamalt mál sem tengist honum og er þekkt undir nafninu stóra málverkafölsunarmálið.“Úlfar rifjar upp málavexti og fer að safna upplýsingum og gögnum til að reyna að varpa ljósi á málið og sanna sakleysi sitt. „Upphefjast mikil, sem hann kallar sjálfur, kafkaísk samskipti við gagnasöfn og yfirvöld til þess að afla þessara upplýsinga. Þetta