Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Varað við snörpum vindhviðum

Veðurstofan varar við hvössum vindi og snörpum vindhviðum austan Öræfa og á Austfjörðum allt fram á þriðjudag.Ekki hefur verið gefin út formleg viðvörun samkvæmt litakerfi Veðurstofunnar en veðurfræðingur varar við vindinum í athugasemd á vef Veðurstofunnar.Spáð er þrettán til átján metrum á sekúndu og vindur getur orðið mun meiri í snörpum vindhviðum. Því er ráðlegt fyrir vegfarendur að hafa vindinn í huga, sérstaklega þeir sem eru í farartækjum sem taka á sig vind.Mynd úr safni.Ágúst Ólafsson / RÚV
Varað við snörpum vindhviðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta