Lilja Dögg Alfreðsdóttir var í dag kosin formaður Framsóknarflokksins eftir að hafa verið varaformaður flokksins í tæpan áratug. Hún er fyrsta konan sem er kosin til embættisins. Valgerður Sverrisdóttir var fram að þessu eina konan sem gegnt hafði formennsku í Framsókn en hún tók við embættinu sem varaformaður þegar Guðni Ágústsson sagði af sér.Sigur Lilju Daggar í dag var afgerandi. 607 greiddu atkvæði og af þeim fékk hún 352. Ingibjörg fékk 254 atkvæði og einn atkvæðaseðill var auður.Þetta þýðir að Lilja Dögg fékk 58 prósent atkvæða, sextán prósentustigum meira en Ingibjörg sem fékk 42 prósent atkvæða. Það er mun meiri munur en þegar Sigurður Ingi Jóhannsson, sem nú lét af formennsku, felldi Sigmund Davíð Gunnlaugsson í formannskjöri síðla árs 2016.Lilja Dögg Alfreðsdóttir hlaut 58 próse