Hundruð þúsunda manna víða um heim mótmæltu stjórnvöldum í Íran um helgina. Klerkastjórnin hefur tekið á mótmælendum í Íran af mikilli hörku og þúsundir hafa verið drepnar.Mótmælabylgja sem hófst í Íran í lok desember teygir anga sína nú um allan heim. Mótmæli kaupsýslumanna í Íran stigmögnuðust í allsherjar mótmæli gegn stjórnvöldum á skömmum tíma.Írönsk yfirvöld hafa beitt mótmælendur mikilli hörku og fjöldi fólks hefur látið lífið. Klerkastjórnin segir minnst 3.000 vera látna en mannréttindasamtök áætla að allt að 7.000 liggi í valnum.250.000 söfnuðust saman í München í Þýskalandi um helgina til að sýna samstöðu með almenningi í Íran, 350.000 mótmæltu í kanadísku borginni Toronto og fjölmenn mótmæli voru einnig haldin í Lundúnum, Los Angeles, Tel Aviv í Ísrael og Lissabon í Portúgal.Rez