Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Rósin íhugar samstarf við önnur vinstri framboð

Rósin, landsfélag jafnaðarfólks, útilokar ekki framboð undir öðrum merkjum í komandi borgarstjórnarkosningum, eða í samstarfi við önnur vinstri framboð. Rósin hefur ákveðið að slíta samstarfi við fulltrúaráð Samfylkingarinnar í Reykjavík vegna óánægju með uppstillingu á framboðslista.Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Rósarinnar, var í 7. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík með 1.704 atkvæði.Niðurstaða prófkjörsins var bindandi fyrir fyrstu sex sætin. Uppstillingarnefnd raðar í önnur sæti og er stefnt að því að framboðslisti liggi fyrir 26. febrúar.Rósin sagði í gær að Guðmundi hefði verið hafnað á framboðslista því hann fengi ekki 7. sætið. Guðmundur segir fulltrúaráðið hafna vilja flokksmanna sem kusu hann. Ákvörðun um að slíta samstarfi við fulltrúaráðið hafi ekki verið hans
Rósin íhugar samstarf við önnur vinstri framboð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta