Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Allt sem hana skortir býr innra með henni

Fólk flýgur, hús takast á loft og ljón tala í Galdrakarlinum í Oz sem fór á fjalir Borgarleikhússins í lok síðasta mánaðar. Áratugum saman hafa ungir sem aldnir heillast af sögunni um stúlkuna Dóróteu sem, ásamt hundinum Tótó, lendir óvænt í ævintýralandinu Oz þar sem allt virðist geta gerst. Guðrún Sóley Gestsdóttir kíkti við í Borgarleikhúsinu og ræddi við leikstjóra og leikara sýningarinnar.„Það er búið að vera algjört ævintýri að setja þetta saman. Mér finnst þetta bara svo skemmtilegt og þegar maður er að gera eitthvað sem manni finnst skemmtilegt þá er það yfirleitt frekar auðvelt,“ segir Þórunn Arna Kristjánsdóttir leikstjóri.„Ein af mínum meginreglum þegar ég vinn með börnum er að ég tala við þau eins og jafningja mína og við erum bara vinir,“ bætir hún við enda er hún þaulvön að v
Allt sem hana skortir býr innra með henni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta