Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er þeirrar hyggju að öryggisráðstefnan í München hafi sýnt að Evrópa þurfi að geta staðið á eigin fótum og þurfi að gæta sín á að vera ekki upp á aðra komin. Þetta þýði ekki að Evrópa eigi að einangra sig, heldur vera óháð öðrum, sérstaklega þegar kemur að öryggismálum.