Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur tjáð sig um umdeilt myndband sem sýndi hann og konu hans, Michelle, í líki apa. Myndbandinu var deilt á samfélagsmiðlareikningum Hvíta hússins, við litla hrifningu margra. Án þess að vísa beint til myndbandsins, segir Obama í hlaðvarpsviðtali, að sómakennd og háttvísi skorti núorðið í stjórnmálaumræðu vestanhafs. Það eigi þó ekki við um langstærstan meirihluta Bandaríkjamanna. Starfsmenn Hvíta hússins reyndu að verja birtinguna, en eftir þónokkurn þrýsting var myndbandinu eytt og skuldinni skellt á einn starfsmann. Barack og Michelle Obama.EPA / MICHAEL REYNOLDS