Helga Sigrún Sigurjónsdóttir telur sig heppna að ekki hafi farið verr þegar hún lenti í slysi á föstudaginn. Þá var hún á ferðinni á hjóli í Laugardalnum og varð fyrir því óláni að hjóla á mikilli ferð á rafhlaupahjól sem lá á hjólastígnum. Helga er óbrotin en tiltölulega illa farin og hefur verið rúmföst frá því á föstudaginn.