Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fyrrverandi forsætisráðherra Noregs ákærður vegna Epstein-tengsla

Thorbjorn Jagland, forsætisráðherra Noregs árin 1996 til 1997 og fyrrverandi forseti Evrópuráðsins, hefur verið ákærður í Noregi fyrir spillingu. Tengsl hans við fjárfestinn Jeffrey Epstein urðu ljós fyrir fáeinum vikum. Í Epstein-skjölunum fundust gögn sem sýndu að Jagland ætlaði að heimsækja Epstein á heimili hans í París, New York og Flórída, eftir að Epstein sat fyrst inni fyrir að kaupa vændi af ólögráða stúlku. Jagland naut friðhelgi sem forseti Evrópuráðsins, en eftir að ráðið afnam þá friðhelgi gat norska spillingarlögreglan Økokrim ákært hann. EPA / HAYOUNG JEON
Fyrrverandi forsætisráðherra Noregs ákærður vegna Epstein-tengsla

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta