Tónlistarmaðurinn John Grant hefur brennandi áhuga á tungumálum og talar nokkur slík sjálfur. Fyrir utan móðurmál sitt, enskuna, talar hann reiprennandi þýsku og rússnesku og vel frambærilega spænsku, auk þess sem hann kann svolítið fyrir sér í bæði sænsku og frönsku. Eftir að hann settist að hér á landi árið 2012 bættist íslenska á þennan lista.