Enn er frost á Fróni en landsmenn geta þó fagnað því að það dregur hægt úr vindi eftir því sem líður á daginn. Austlendingar eru þó ekki sloppnir því þar bætir í vind og ofankomu í kvöld.Þungfært var á Bjarnarfjarðarhálsi samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni klukkan átta. Þá var þæfingsfærð á Þröskuldum en snjóþekja á Dynjandisheiði, Gemlufjallsheiði, Klettshálsi og í Steingrímsfirði. Einnig var þæfingsfærð í Siglufirði, Ólafsfirði og á Víkurskarði.Víða er hálka á vegum.Veðurspáin er svohljóðandi:Hægt minnkandi norðan- og norðaustanátt í dag, yfirleitt á bilinu fimm til þrettán metrar á sekúndu eftir hádegi. Dálítil él norðan- og austantil á landinu, en léttir til sunnan heiða. Bætir í vind og ofankomu austanlands í kvöld.Norðlæg átt, þrír til átta, á morgun, en átta til þrettán austanlan