Fjögur ár eru um þessar mundir síðan Rússlandsher réðst inn í Úkraínu. Fólk innan rússneska stjórnkerfisins, sem útlægi rússneski blaðamaðurinn Farida Rustamova hefur rætt við síðustu mánuði, hefur áhyggjur af því hvað taki við í Rússlandi þegar stríðinu lýkur loks. Enginn viti hvenær það gerist. Meðal elítunnar hafi vonir verið bundnar við að Donald Trump Bandaríkjaforseta tækist að hafa milligöngu um samninga. Ár er liðið af valdatíð hans og stríðið stendur enn.Rustamova hefur mikið fjallað um elítuna í Rússlandi. Sjálf hefur hún yfirgefið Rússland og rekur sinn eigin fjölmiðil sem heitir Faridaily. Hún hefur í gegnum tíðina fjallað um rússnesk stjórnmál og starfað fyrir ýmsa fjölmiðla, eins og BBC og rússneska útlæga fjölmiðilinn Meduza.Hún segir að fólk hafi áhyggjur af því hvernig sam