Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Stjórnvöld vísa því á bug að hafa eitrað fyrir Navalní með froskaeitri

Rússnesk stjórnvöld vísa á bug sameiginlegri yfirlýsingu ríkisstjórna Breta, Frakka, Þjóðverja, Svía og Hollendinga um að rússnesk stjórnvöld hafi eitrað fyrir stjórnarandstæðingnum Aleksei Navalní með froskaeitri.,,Þegar niðurstöður rannsóknanna liggja fyrir og formúlur efnanna verða birtar opinberlega munum við gefa út yfirlýsingu í samræmi við það. Þangað til eru allar slíkar fullyrðingar áróður, sem ætlað er að beina athyglinni frá vandamálum Vesturlanda,“ segir María Zakharova, fjölmiðlafulltrúi rússneska utanríkisráðuneytisins, sem tjáði sig um málið við rússnesku fréttastofuna TASS. Norska ríkisútvarpið greinir svo frá.Á morgun eru tvö ár síðan Navalní lést í fanganýlendu í Norður-Síberíu. Sýni úr líkamsleifum hans voru send til greiningar í tveimur ríkjum. Í þeim fannst eitrið epib
Stjórnvöld vísa því á bug að hafa eitrað fyrir Navalní með froskaeitri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta