Rússlandsher sýnir Pantsir-loftvarnarkerfi á æfingu fyrir hátíðarhöld á Sigurdeginum í Moskvu 7. maí 2021. Sigurdagurinn er haldinn hátíðlegur 9. maí.EPA / MAXIM SHIPENKOVSérsveitardeild úkraínsku leyniþjónustunnar greindi frá því í gær að hún hefði eyðilagt um helming allra Pantsir-loftvarnarkerfa Rússa.Pantsir-loftvarnarkerfin eru einn mikilvægasti herbúnaður Rússa en þau eru nýtt til að verjast langdrægum drónaárásum Úkraínuhers. Úkraínuher mun eiga auðveldara með að ráðast á herstöðvar, vörugeymslur, flugvelli og aðra hernaðarlega innviði þegar Rússar geta ekki varist árásunum með Pantsir-loftvarnarkerfinu. Hvert Pantsir-loftvarnarkerfi kostar á milli 15-20 milljónir bandaríkjadala.Fréttamiðillinn Kyiv Independent greinir svo frá.