Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Forsetinn sakar Rússa um árásir á sendiráð Asera í Kyiv

Forseti Aserbaísjan, Ilham Aliyev, sakar Rússa um að hafa vísvitandi ráðist á sendiráð landsins í Kyiv, höfuðborg Úkraínu. Aliyev lét þessi orð falla í viðtali við sjálfstæða fjölmiðilinn Ukrainska Pravda, á öryggisráðstefnunni í Munich í gær.Aliyev segir að þrjár árásir hafi verið gerðar á orkuinnviði Asera í Úkraínu og einnig hafi verið þrjár árásir á sendiráð Aserbaísjan í Úkraínu. Ríkisstjórnin taldi að fyrsta árásin hefði verðið óviljandi og lét rússnesk stjórnvöld fá nákvæmar upplýsingar um staðsetningu allra eininga sem tilheyra sendiráði Aserbaísjan, ræðisskrifstofu og menningarsetri. Þrátt fyrir það fylgdu fleiri árásir í kjölfarið.Stjórnvöld í Aserbaísjan hafa fram til þessa ekki tekið afstöðu í innrás Rússa í Úkraínu, en ummæli forsetans varpa ljósi á aukna togstreitu í samskipt
Forsetinn sakar Rússa um árásir á sendiráð Asera í Kyiv

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta