Árleg kúbönsk vindlahátíð, Festival del Habano, hefur verið blásin af á Kúbu, vegna neyðarástands sem skapast hefur í orkumálum eftir að Bandaríkin settu hafnarbann á olíuflutninga til Kúbu.Hátíðin hefur verið haldin í 25 ár og átti að fara fram í lok mánaðarins. Hátíðin dregur að sér áhugafólk um kúbanska vindla, viðskiptafólk og blaðamenn hvaðanæva að úr heiminum. Meðal fastra viðburða hátíðarinnar er uppboð á lúxus-vindlum og reyktóbakskrukkum. Á síðasta ári voru tekjur af uppboðinu tæpar nítján milljónir dollarar, sem renna til heilbrigðiskerfis landsins.Víðtækt rafmagnsleysi hefur verið á Kúbu undanfarið og skortur á eldsneyti hefur sömuleiðis valdið miklum samgöngutruflunum. Mörg ríki hafa ráðlagt ríkisborgurum sínum frá því að ferðast til Kúbu vegna ástandsins og fjölmörg alþjóðaflu