Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Yfir 45 drepnir í árásum vígamanna á þrjú þorp

Yfir 45 voru drepnir í árásum á þrjú þorp í Niger-héraði í Mið-Nígeríu í gær. Fólkið var ýmist skotið til bana eða skorið á háls af vígamönnum sem réðust inn í þorpin á yfir fjörutíu mótorhjólum, hvert þeirra með tveimur til þremur mönnum á.Flest heimili voru brennd til grunna, margra er saknað, og allavega fjórum konum var rænt af vígamönnunum. Mannfall er því talið geta verið enn meira.Árásir sem þessar og mannrán eru tíð í Nígeríu. Margir vígahópar og íslamistar halda til í Kainji-skóginum sem er á mörkum Níger- og Kwara-héraðanna. Fyrr í þessum mánuði myrtu íslamistar yfir 160 manns í árás á þorpið Woro í Kwara-héraði.Stjórnvöld í landinu hafa verið undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn vegna óstöðugleika í landinu. Því óskaði ríkisstjórnin nýverið eftir aðstoð frá Bandaríkjaher til að
Yfir 45 drepnir í árásum vígamanna á þrjú þorp

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta