Norskur vísindamaður er sagður hafa gert tilraun á sér sjálfum með sérstöku vopni í von um að afsanna þær kenningar að örbylgjur gætu valdið hinu svokallaða Havana-heilkenni. Það fór ekki á hinn besta veg og nú er hann sjálfur sagður glíma við einkenni sem líkjast þessari dularfullu veiki.