Mikil spenna er á flokksþingi Framsóknarflokksins í aðdraganda formannskjörs á morgun. Sigurður Ingi Jóhannsson flutti lokaræðu sína eftir áratug í formennsku.Flokksþingið hófst í morgun og hápunkturinn í dag var lokaræða Sigurðar Inga.„Kæru vinir. Ég er ekki hættur í pólitík, en ég segi takk,“ sagði Sigurður Ingi.Formannskjörið á morgun verður sögulegt því sigurvegarinn verður fyrsta konan í 109 ára sögu flokksins til að verða kjörin formaður Framsóknarflokksins.Sigurður Ingi sagðist ganga stoltur frá borði og að nú standi flokkurinn á krossgötum.Sigurður Ingi Jóhannsson gagnrýndi bæði ríkisstjórnina og Miðflokkinn í lokaræðu sinni sem formaður Framsóknarflokksins. Það ræðst á morgun hvort Lilja Alfreðsdóttir eða Ingibjörg Isaksen tekur við keflinu.„Umburðarlyndur, frjálslyndur miðjuflokk