Annar dagur árlegrar öryggisráðstefnu í München var í dag. Ræða utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Marco Rubio, var fyrst á dagskrá. Í ræðu sinni fór hann fögrum orðum um Evrópu, sögu álfunnar og menningu, sagði Bandaríkin barn Evrópu og að Bandaríkjamenn vildu fá bandamenn sína á meginlandinu með sér í breytingar á heimsmyndinni.Þótt innihald ræðu utanríkisráðherra Bandaríkjanna hafi verið í takti við stefnu Trump-stjórnarinnar hingað til voru umbúðirnar aðrar og tónninn mildari.Sérfræðingur í alþjóðamálum segir grundvallarkröfu Bandaríkjamanna til Evrópuríkja vera enn þá sömu þrátt fyrir að tónn bandarískra ráðamanna á öryggisráðstefnunni í München í dag hafi verið mildari en áður.Albert Jónsson, sérfræðingur í alþjóðamálum, segir að þrátt fyrir breyttan tón Rubio sé grundvallarkrafa Banda