Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Julia: Ó, ljúfa líf

Arnar Eggert Thoroddsen skrifar:Í raun réttu er um fimmtu plötu Ásgeirs að ræða. Dýrð í dauðaþögn (2012) kom út sem In the Silence árið 2014 og ekki ætla ég að rekja áhrif hennar sérstaklega. Platan sem gerði Ásgeir heimsfrægan á Íslandi og seinna raunheimsfrægan. Natið og næmt þjóðlagapopp sem hitti heila þjóð í hjartastað. Ásgeir sýndi með Afterglow (2017) að ekki yrði tjaldað til einnar nætur, rafdrifin plata og giska hugrakkt verk. Bury the Moon / Sátt (2020) var svo einslags heimkomuplata, íslensk og jarðbundin. Enn tók okkar maður svo sveigju á Time on my Hands (2022), nett flippað verk, hlaðið tónrásum og tilraunakenndum sprettum, en samt kirfilega innan tónmáls höfundarins.Af þessu má sjá að það er aldrei á vísan að róa með nýja Ásgeirs-plötu. Og enn er nýlunda. Ólmun síðustu plötu
Julia: Ó, ljúfa líf

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta