Boðið var upp á giftingar á færibandi í Digraneskirkju í tilefni af Valentínusardegi. Átta pör létu pússa sig saman. Eymar Andri Birgisson og María Liv Biglio voru á meðal þeirra en pörum var boðið upp á að láta gefa sig saman með stuttum fyrirvara, í tilefni Valentínusardagsins. Athöfnin er stutt en hátíðleg og þau giftu sig í viðurvist sinna nánustu. BAUÐ Á DEIT EN ÁTTI VIÐ HJÓNABAND Eyþór Örn Gunnarsson og Hjálmey Oddgeirsdóttir létu einnig pússa sig saman og segja það bíða betri tíma að halda stóra veislu.„Þessi nefndi um daginn bara, kom til mín og sagði: Ég ætla bara að bjóða þér á deit og sýndi mér svo þetta. Það er búið að vera talað um það lengi að gera þetta, svo af hverju ekki að láta slag standa?“ segir Eyþór.Ástin var í aðalhlutverki í Digraneskirkju í Kópavogi í dag. Boðið