Fjórir eru grunaðir um að hafa í síðasta mánuði svipt mann frelsi sínu, misþyrmt honum í bíl og skilið hann eftir utandyra. Maðurinn var þungt haldinn þegar hann fannst.Maðurinn var sóttur á heimili sitt þaðan sem ekið var með hann að Völlunum í Hafnarfirði. Heimildir herma að ráðist hafi verið á hann í bílnum og að árásin hafi verið hrottafengin. Í framhaldinu var ekið með hann að Bíldshöfða í Reykjavík og hann skilinn þar eftir, utandyra, í miklum kulda. Hann fannst þar og var fluttur þungt haldinn á Landspítalann.Fréttastofa hefur ekki fengið upplýsingar um ástand mannsins í dag. Heimildarmenn fréttastofu segja að það hafi verið manninum til happs að hann hafi fundist fljótlega eftir að hann var skilinn eftir úti.Lögreglan vildi ekki tjá sig um málið, sagði það viðkvæmt, en vísaði til t