Hljóðmengun hefur áhrif á atferli fugla um allan heim og truflar makaleit þeirra, leit að fæðu og getu til að forðast hættur. Þetta kemur fram í greiningu hóps vísindamanna á rannsóknargögnum til nærri fjörutíu ára sem ná yfir ýmsar fuglategundir í sex heimsálfum jarðarinnar.Vísindafólkið tók saman og greindi rannsóknargögn fyrir um 160 fuglategundir úr rannsóknum allt aftur til 1990 til að kanna hvort hægt væri að greina niðurstöður á breiðum grunni. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að hljóðmengun hefur gríðarlega mikil áhrif á samskipti, fæðuöflun, mökun, búsetusvæði og fjölgun fugla.Fuglar treysta á upplýsingar frá öðrum fuglum í umhverfi sínu til að lifa af og þar af leiðandi eru þeir viðkvæmir fyrir nútímahávaða líkt og frá bílum, tækjum og þéttbýlishljóðum. „Fuglar syngja til að finna sé