Ragnar Sigurðsson er sjálfkjörinn oddviti lista Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð, þetta var ákveðið á fulltrúaráðsfundi flokksins í dag. Ragnar var einnig oddviti flokksins í síðustu kosningum og er starfandi formaður bæjarráðs Fjarðarbyggðar.Ragnar segir listann vera samblöndu af reynslu og nýliðun sem veiti kraft í komandi kosningabaráttu. Sjálfur segist hann vera spenntur fyrir samstarfinu. ,,Ég er fullur tilhlökkunar að starfa með þessum sterka og öfluga hópi fyrir íbúa Fjarðabyggðar“, segir Ragnar.Alls voru 12 einstaklingar í framboði fyrir efstu sex sæti listans.RÚV