Fimm ríki saka rússnesk stjórnvöld um að hafa ráðið rússneska stjórnarandstæðingnum Alexei Navalní bana með eitri úr froski. Navalní lést í rússneskum fangabúðum fyrir tveimur árum eftir að hafa verið dæmdur til 19 ára fangelsisvistar. Sýni af líkamsleifum Navalní voru tekin og send til greiningar í tveimur ríkjum.Bretland, Frakkland, Þýskaland, Svíþjóð og Holland undirrituðu yfirlýsingu þar sem vísað er í niðurstöðu fjölþjóðlegrar rannsóknar leyniþjónustustofnana.Bresk stjórnvöld sögðu að þau ætluðu að tilkynna Rússa til Efnavopnastofnunar fyrir brot gegn alþjóðlegum sáttmála um efnavopn.Lengi hefur verið talið að rússnesk stjórnvöld hafi eitrað fyrir Navalní. Þó hefur ekki legið fyrir hvers konar eitur var notað fyrr en nú.