Erlend vefsíða þar sem birtar voru persónuupplýsingar um liðsmenn bandarísku innflytjendastofnunarinnar ICE undir íslensku léni er á borði lögreglu. Innviðaráðherra telur brýnt að breyta lögum um íslenskt landshöfuðlén þannig að hert verði á opinberu eftirliti með skráningarstofunni ISNIC, sem heldur utan um .is-lénið.Á vefsíðunni Icelist Wiki voru birtar upplýsingar um rúmlega 4.500 ICE-liða. Írskur maður stendur á bak við síðuna og hún er hýst í Hollandi. Aðeins lénið er íslenskt.Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er málið á borði hennar. Lögreglan segist ekki geta veitt frekari upplýsingar að svo stöddu og því er ekki er ljóst hvort farið verði fram á að léninu verði lokað. „FLÓKIÐ OG VIÐKVÆMT ÁLITAMÁL“ Innviðaráðherra hyggst leggja fram frumvarp um breytingu á lögum um landshöfuðlén