Eitrað var fyrir Alexei Navalní, rússneska stjórnarandstæðingnum heitna, með eitri sem þróað var út frá eitri úr froskum sem lifa í Suður-Ameríku. Þetta segja yfirvöld í Bretlandi en eitur þetta mun bera nafnið epibatidine og mun það hafa fundist í sýnum sem tekin voru af líki Navalní, eftir að hann lést í fanganýlendu í Rússlandi fyrir um tveimur árum.