Sjálfstæðisfélagið Kári hefur samþykkt framboðslista í Rangárþingi eystra. Framboðið verður undir merkjum D-listans og annarra lýðræðissinna, að því er fram kemur í tilkynningu félagsins.Anton Kári Halldórsson, sveitarstjóri Rangárþings eystra, skipar efsta sæti listans. Á eftir honum er Aðalbjörg Rún Ásgeirsdóttir bóndi í öðru sæti og Andri Már Óskarsson húsasmíðameistari er í því þriðja.Hulda Dóra Eysteinsdóttir, sjálfstætt starfandi hrossaræktandi, skipar fjórða sæti listans og Helgi Valur Smárason, stuðningsfulltrúi og fótboltaþjálfari, það fimmta.Hluti þeirra sem bjóða sig fram undir merkjum D-listans í Rangárþingi eystra.Aðsend / Sjálfstæðisfélagið Kári