Íbúi í Reykjavík segir óboðlegt að gefast upp fyrir mikilli svifryksmengun sem mælst hafi á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga. Hann kallar eftir viðbrögðum frá þingmönnum og borgarfulltrúum og segir að fólk hljóti að setja spurningamerki við að hleypa börnunum sínum út í þeim aðstæðum sem hafa ríkt.