Kjartan Guðmundsson sem legið hefur þungt haldinn á spítala í Suður-Afríku eftir alvarlegt bílslys í desember er kominn til landsins. Agnar Jónsson, vinur Kjartans, segir hann hafa verið færðan beint á gjörgæsludeild á Landspítalanum.Líðan hans sé góð eftir atvikum. Kjartan slasaðist mikið í slysinu og er enn þá í öndunarvél.Ferðalagið tók alls um 23 klukkustundir en Agnar segir það hafa gengið vel.Kjartan er faðir drengs sem fór í fíknimeðferð hjá stofnuninni Healing Wings í Suður-Afríku. Þrír íslenskir drengir hafa verið í meðferð þar.Fjölskylda eins þeirra hélt utan til að vera með honum yfir jólin á síðasta ári. Þegar fjölskyldan var nýkomin til Suður-Afríku lentu þau í alvarlegu bílslysi, þar sem Kjartan slasaðist alvarlega og móðir hans og dóttir létust.