213 manns tóku við prófskírteinum sínum frá Háskólanum á Bifröst í Hjálmakletti í dag. Þetta er fjölmennasta útskrift úr háskólanum til þessa. 155 konur voru meðal útskriftarnema í dag og 58 karlar.182 útskrifuðust í júní í fyrra og 88 í febrúar. 108 útskrifuðust sumarið 2024 og 89 í febrúar það ár.Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir starfandi rektor ávarpaði útskriftarnemendur og gesti. Hún þakkaði Margréti Jónsdóttur Njarðvík, fyrrverandi rektor, fyrir góð störf í þágu skólans, að því er fram kemur í tilkynningu frá Bifröst.Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, fyrir miðju, er starfandi rektor Háskólans á Bifröst.Aðsend / Háskólinn á BifröstÞetta er fjölmennasti útskriftarhópurinn til þessa.Aðsend / Háskólinn á Bifröst