Sigurður Ingi Jóhannsson lætur af embætti sem formaður Framsóknarflokksins á morgun þegar nýr formaður verður kjörinn. Flokksþing er haldið í Reykjavík um helgina.Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður og Lilja Alfreðsdóttir varaformaður flokksins gefa kost á sér til að taka við formennsku í flokknum. Lilja er talin sigurstranglegri í veðbönkum en viðmælendur fréttastofu úr herbúðum þeirra beggja eru bjartsýnir og telja sig hafa þann atkvæðafjölda sem þarf til að tryggja sínum frambjóðanda sigur.Sigurður Ingi ávarpar flokksþingið klukkan eitt. Það er hans síðasta ræða sem formaður flokksins sem hann hefur leitt í áratug.Hægt er að horfa á ræðu Sigurðar Inga hér að neðan:Sigurður Ingi Jóhannsson ávarpar flokksþing Framsóknarflokksins eftir hádegi. Það er hans síðasta ræða sem formaður flokksi