Stjórn Rósarinnar, Landsfélags jafnaðarfólks innan Samfylkingarinnar, hefur ákveðið að slíta samstarfi við fulltrúaráð Samfylkingarinnar í Reykjavík. Félagið er ósátt við uppstillingu á framboðslista fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar en formaður fulltrúaráðsins segir uppstillingu ekki vera lokið.„Þessi ákvörðun er ekki tekin í neinu ósætti við Samfylkinguna sjálfa og við erum í Samfylkingunni og erum samfylkingarfólk og jafnaðarfólk,“ segir Guðný Maja Riba, varaformaður Rósarinnar.„En hún er raunverulega tekin af því að okkar frambjóðanda var í raun og veru hafnað á lista,“ segir hún. Í yfirlýsingu Rósarinnar segir að félagið sé með þessu sjálfstætt í sínum ákvörðunum og muni ákveða sjálf framboðsmál og samstarf í framboðum á vegum félagsins.Frambjóðandi Rósarinnar var Guðmundur Ingi