Andrými er safn kviksagna eftir þvagfæraskurðlækninn Eirík Jónsson og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í flokki skáldverka. „Þetta eru örsögur og svolítið mikið konsept-verk,“ segir Þorgeir Tryggvason gagnrýnandi Kiljunnar á RÚV.„Það er greinilegt að það hefur verið ákveðið að hver saga rúmaðist á einni síðu. Það er stundum alveg á mörkunum að það gangi, sem gerir ekkert til.“Það sé hægt að flokka sögurnar í nokkra flokka að mati Þorgeirs. „Það eru sögur þar sem maður hugsar: Þessi maður er búinn að vera lesa Borges. Aðrar þar sem hann langar að vera fyndinn eins og Þórarinn Eldjárn með punch, helst orðaleik. Það eru sögur sem eru eiginlega ekki sögur heldur útlistanir á eðlisfræði eða rúmfræði.“Hann segir bestu sögurnar vera pínu skemmtilegar. Sú saga sem situr mest í honum