Við Ísland verða staðir vart einangraðri en Eldey. Rúmlega 75 metra hár klettadrangur rís úr hafi 15 kílómetrum suðvestan við Reykjanestá þar sem veður, vindar og þung aldan brjóta stanslaust á þessum illkleifa og friðaða útverði landsins. Flatarmálið á hatti eyjarinnar er lítið, um þrír hektarar, svipað pláss og tveir til þrír sumarbústaðir tækju til sín í þéttri sumarhúsabyggð. Hér...