Curro Rodríguez, Hoym og Skurðgoð komu fram á Upprásinni í Hörpu 27. janúar. CURRO RODRÍGUEZ Curro Rodríguez hóf kvöldið með kraftmiklum og rafdrifnum flamengo-söng. Flamengo hefur alltaf verið stór partur af lífi hans. Faðir hans var mikill aðdáandi þess og þar sem Curro er frá Suður-Spáni þá var hann umkringdur því. Hann viðurkennir þó að þegar hann var yngri hefði hann ekki kunnað jafn mikið að meta flamengo. Það var ekki fyrr en hann fluttist til Madrid að hann fór að meta listina og fór að finna út úr því hvaða þýðingu hún hefði fyrir hann.Curro flutti verkið Flamencosomia þetta kvöld. Verkið er splunkuný hugmynd fyrir honum en áætlunin er að þróa það áfram með fleira listafólki. Þar sem það er lítið sem ekkert hér á landi tengt flamengo vissi fólk ekki mikið um hvað það er eða þýð